Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, voru heiðraðar á Velsældarþingi í dag. Þær hlutu Velsældarverðlaunin sem veitt eru fólki sem hefur lagt sitt af mörkum til að efla velsæld í samfélögum sínum og víðar um heim. Í tilkynningu segir að Katrín hafi meðal annars leitt vinnu við að innleiða velsældarvísa í íslenska stjórnsýslu og sett fram stefnu um langtíma lífsgæði þjóðarinnar. Sturgeon er sögð hafa verið í fararbroddi í framþróun á hagkerfi Skotlands sem leiðandi ríkis í velsæld. Velsældarþing er skipulagt af landlæknisembættinu.Aðsend