Stjórnarandstæðingar á Alþingi saka ríkisstjórnina um ráðabrugg og blekkingaleik varðandi fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að halda áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Í frétt Morgunblaðsins í dag var fjallað um að gögn utanríkisráðuneytisins frá 2010 gefi meðal annars til kynna að aðlögun að ESB hefjist meðan á aðildarviðræðum stendur.Tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi í dag.„Hæstvirtir ráðherrar, forystumenn ríkisstjórnarinnar, hafa annaðhvort viljandi eða óviljandi sagt þinginu og þjóðinni ósatt um aðildarviðræður við Evrópusambandið og áformaða þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins.„Þessar viðræður munu ekki snúast um að sjá hvað er í boði. Áframhald viðræðna myndi eingöngu snúast um áf