Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í borginni

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í Reykjavík samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Alls mælist hann með 27,6% fylgi miðað við könnunina og bætir við sig 3,1% frá því í kosningunum 2022. Hann fengi þannig sjö borgarfulltrúa.Samfylkingin mælist með næstmest fylgi, 23,2%. Flokkurinn hlaut 20,3% atkvæða í kosningunum 2022. Samfylkingin hlyti sex fulltrúa samkvæmt þeirri niðurstöðu.Vinstrið á sterka innkomu sem nýr flokkur og mælist með 13,5% fylgi. Það fylgi myndi skila alls þremur borgarfulltrúum.Vinstrið er sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðir listann og var áður borgarfulltrúi fyrir hönd Sósíalistaflokksins. Í síðustu kosningum 2022 fengu Vinstri græn alls 7,7% atkvæða og Sósíalistar 4% eða samtals 11,7% atkvæða. MEIRIHLUTINN
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í borginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta