Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gömlum banka breytt í hótel og veitingastað

Akraneskaupstaður er búinn að selja Landsbankahúsið við Akratorg. Húsið hefur alla tíð verið kennt við Landsbankann þrátt fyrir að langt sé síðan bankinn hætti starfsemi þar. Forsvarsmenn Hrauns fasteignafélags hafa undirritað samnig við bæinn um kaup á húsinu. Þeir stefna að því að byggja upp hótel og veitingastað í húsinu. Þeir hafa jafnframt óskað eftir því að fá að bæta við einni hæð ofan á húsið. Húsið var tekið í notkun 1972 og hefur sett sterkan svip á Akratorg alla tíð síðan. Í tilkynningu bæjarins um sölu segir að húsið eigi að halda upprunalegum stíl og einkennum eins og kostur er.Akraneskaupstaður
Gömlum banka breytt í hótel og veitingastað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta