Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Franskri ekkju á níræðisaldri sleppt úr haldi ICE

Frönsk ekkja á níræðisaldri sneri í dag heim til Frakklands frá Alabama í Bandaríkjunum þar sem hún var handtekin og vistuð í varðhaldsbúðum ICE, tolla- og innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna, eftir að eiginmaður hennar lést.Marie-Thérèse Mahé flutti frá Bretagne í Frakklandi til Alabama í fyrra til að giftast æskuástinni sinni, bandaríska fyrrverandi hermanninum Bill Ross. Þau voru á níræðisaldri og bæði búin að missa maka sína. Parið kynntist upphaflega á sjötta áratugnum þegar Ross gegndi hermennsku í Frakklandi og Mahé var ritari hjá hernum, að því er The Guardian greinir frá. Leiðir þeirra skildu þegar Ross var kallaður heim 1966. Þau gengu bæði í hjónaband og eignuðust börn. 2010 hófu þau samskipti á samfélagsmiðlum og þegar bæði voru orðin einstæð ákváðu þau í fyrra að ganga í hjóna
Franskri ekkju á níræðisaldri sleppt úr haldi ICE

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta