Forseti Alþingis hóf þingfund dagsins á að greina frá mannabreytingum í nefndum þingsins. Í erindi sem barst forseta kom fram að samkomulag hefði hefði náðst á milli Flokks fólksins og Guðmundar Inga Kristinssonar um að Guðmundur Ingi tæki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Ásthildar Lóu Þórsdóttur.