Borgarráð hefur samþykkt tillögu um endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða og verða tíu milljónir settar í sjóðinn til úthlutunar á þessu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Markmiðið er að efla tónleikastaði í miðborginni. Tveimur milljónum verður varið í að byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir 12-18 hljómsveitir.Spretthópur um lifandi tónlistarflutning í Reykjavík skilaði tillögum til aðgerða í lok febrúar. Hópnum var ætlað að meta stöðu lifandi tónlistarflutnings í borginni og gera tillögur um bætta aðstöðu til tónleikahalds tónlistarfólki, tónleikastöðum, almenningi og ferðafólki til heilla. Niðurstöður sýna að tónleikastaðir búa við kerfislægan rekstrarvanda og spretthópurinn telur aðgerða þörf svo núverandi aðstaða til lifandi tónlistarflutnings í miðborg Reykjavíkur setji e