Ríflega hundrað milljóna munur er á tjónamati Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga vegna uppgjörs á kostnaði leigusamninga fyrir húsnæði sem hýsti umsækjendur um alþjóðlega vernd. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir ekki óvænt að kostnaður hafi hlotist af en kröfur sveitarfélaganna sé afar háar.Vinnumálastofnun var með samninga um húsnæðisþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd við þrjú sveitarfélög: Reykjavík, Hafnarfjörð og Reykjanesbæ.Samningarnir eru ekki í gildi lengur og á stofnunin nú í viðræðum við sveitarfélögin þar sem greitt er úr hver beri ábyrgð á kostnaði vegna ástands þjónustuhúsnæðisins. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir breyttar forsendur vera ástæðu þess að samningunum var sagt upp.„Tilurð þessa er fyrst og fremst sú að það var svo gríðarlegur