Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eru geisladiskarnir að koma aftur? „60% aukning í sölu milli ára“

„Staðan er rosalega góð. Við áttum metár í fyrra og þetta ár fer mjög kröftuglega af stað,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson eigandi Plötubúðarinnar.is í Hafnarfirði.Athygli vekur að geisladiskar skipa stóran sess í versluninni, Haraldur segir að þeir séu að koma aftur. „Það má eiginlega segja að þetta sé yngsta fólkið og svo elsta fólkið sem kaupir geisladiskana,“ segir Haraldur. „Hjá mér á þessu ári er geisladiskasala upp um 60% frá sama tíma í fyrra,“ bætir Haraldur við.Vínillinn er þó vinsælastur og mun meiri sala á honum. „Það er undantekning ef það er ekki að koma út á vínil,“ segir Haraldur um útgáfu á nýjum plötum.Meira í spilaranum hér að ofan.Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu öll fimmtudagskvöld á RÚV og í spilaranum þegar þér hentar.
Eru geisladiskarnir að koma aftur? „60% aukning í sölu milli ára“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta