Grínþættirnir 20 og eitthvað verða frumsýndir á Rúv í kvöld en þeir hafa verið fjögur ár í bígerð. Æskuvinirnir Óli Gunnar og Arnór ákváðu, eftir áralangt samstarf, að opna sambandið og bæta Vigdísi Hafliðadóttur í hópinn. Umfjöllunarefni þáttanna er þrítugsaldurinn, þetta mikla óvissutímabil þar sem fólk er að komast á fullorðinsaldur.