Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, telur tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru á dögunum ekki duga til að lækka vexti og verðbólgu.„Við tókum það inn í reikninginn, þessa tímabundnu lækkun á bensíni, en það dugir ekki til. Við verðum áfram með mikla verðbólgu,“ segir Una.Hún var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun þar sem hún ræddi hagspá Landsbankans fyrir árin 2026-2028 sem var birt í morgun. SPÁ 8,25 PRÓSENTA STÝRIVÖXTUM. Greiningardeild Landsbankans telur sennilegt að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á árinu. Hún spáir 1,7 prósenta hagvexti í ár.Þar er því spáð að stýrivextir verði ekki lækkaðir fyrr en á næsta ári en bankinn gerir ráð fyrir meðalverðbólgu upp á 4,8 prósent í ár. Gert er ráð fyrir að húsnæðisverð hækki hægar e