Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa orðið Celeste Rivas Hernandez að bana. Líkamsleifar Hernandez fundust í skotti Teslu-bifreiðar hans í fyrra. Hún var aðeins fjórtán ára þegar hún lést. Rétt nafn tónlistarmannsins er David Anthony Burke, hann er í dag 21 árs.