Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Reynsla barna af heimavist afar misjöfn: „Mig langaði bara alltaf heim”

„Mér fannst það ekkert sérlega erfitt. Þetta var það að vera í skóla í mínum huga,“ segir Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, um reynslu sína af heimavist. Jónína er alin upp í Dölunum og fór 9 ára gömul í heimavistarskólann á Laugum í Sælingsdal. Jónína er meðal viðmælenda Þórgunnar Oddsdóttur í fyrsta þætti þáttaraðarinnar Börnin á vistinni á Rás 1. > „Auðvitað var einelti í gangi og maður vissi af því en ég held að það hafi verið einelti alls staðar. En auðvitað komstu aldrei undan því, þú komst aldrei heim.“ ÞÓTTI Í LAGI AÐ SKERÐA SKÓLATÍMA SVEITABARNA Jónína hefur í rannsóknum sínum meðal annars skoðað þann sið að senda börn í sveit og samspil þess siðar við skólahald á Íslandi. Hún segir að heimavistarskólarnir séu ekki síður áhugavert rannsóknarefni.„
Reynsla barna af heimavist afar misjöfn: „Mig langaði bara alltaf heim”

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta