Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur brugðist við uppsögn skólameistara Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum með því að segja að unnið sé að uppbyggingu verknámsaðstöðu við fjóra framhaldsskóla.Kristján Ásmundsson skólameistari tilkynnti á starfsmannafundi í gær að hann hygðist hætta. Hann sagði að lengi hefði verið þrýst á um úrbætur í húsnæðismálum en ekkert hefði orðið af framkvæmdum. Hann hætti því vegna óánægju með húsnæðismál skólans.Starfsfólk skólans sendi frá sér yfirlýsingu síðar í gær þar sem það fordæmdi að ekkert hefði þokast í úrbótum á húsnæðinu. Starfsfólkið skoraði á mennta- og barnamálaráðuneytið að standa við gefin loforð og hefja framkvæmdir við stækkun skólans strax í sumar.Ráðuneytið hefur brugðist við á heimasíðu sinni. Þar segir að hanna eigi viðbyggingu í júní og hefja