Stór orð hafa nýlega verið látin falla um framtíð NATO beggja vegna Atlantshafsins. Ef taka ætti þau bókstaflega væri íslenska þjóðin, sem byggt hefur varnir sínar nær alfarið á aðild sinni að bandalaginu og tengdum tvíhliða varnarsamningi hennar við Bandaríkin, ugglaust í nokkrum vanda.