Íbúar á vestan- og norðanverðu landinu mega gera ráð fyrir skúrum og jafnvel rigningu framan af degi áður en léttir til þegar á líður. Á Austfjörðum þykknar upp og fer að rigna seint í kvöld. Frekar svalt verður á Vestfjörðum, allt niður í þriggja stiga hiti, en annars staðar verður hlýrra, allt að tólf stiga hiti.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Hæg breytileg átt og smá skúrir vestantil, en dálítil rigning eða súld norðaustanlands í fyrstu, en léttir síðan til. Þykknar upp og fer að rigna á Austfjörðum seint í kvöld.Hiti 3 til 12 stig að deginum, svalast á Vestfjörðum.Vestlæg átt á morgun, víða 5-13. Skúrir eða slydduél en úrkomumeira austast fyrripartinn. Minnkandi vindur og úrkoma síðdegis, en hægt vaxandi suðaustanátt suðvestantiltil um kvöldið. Hiti 5 til 10 stig suðaus