Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tónlistarmaðurinn d4vd grunaður um að hafa myrt 14 ára stúlku

Bandaríski tónlistarmaðurinn d4vd, eða David Anthony Burke, er í haldi lögreglu í Los Angeles grunaður um að hafa myrt 14 ára stúlku sem fannst örend í skotti Tesla-bifreiðar í hans eigu síðasta haust. David Anthony Burke eða d4vd á sviði Montreux jasshátíðarinnar í Sviss árið 2024.EPA / CYRIL ZINGAROBíllinn stóð á svæði fyrirtækis sem fjarlægir yfirgefna eða bilaða bíla. Lík stúlkunnar, Celeste Hernandez, var illa farið og réttarmeinafræðingar sögðu það hafa legið talsverðan tíma í bílnum áður en það fannst. Í yfirlýsingu lögreglu segir að Burke verði í haldi yfir helgina meðan saksóknari metur hvort rétt sé að ákæra hann fyrir morðið. Heilt ár er síðan Celeste Hernandez sást seinast á lífi en þá var tilkynnt um hvarf hennar.
Tónlistarmaðurinn d4vd grunaður um að hafa myrt 14 ára stúlku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta