Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði ökumann í gærkvöld eða nótt fyrir að bjóða of mörgum far, meðal annars kom einn sér fyrir í skottinu á bílnum.Lögreglubíll í Austurstræti. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonAnnar ökumaður hlaut kæru fyrir að aka á 119 kílómetra hraða í Kópavogi þar sem leyfður hámarkshraði er áttatíu. Hann reyndi en tókst ekki að komast undan á hlaupum að því er segir í dagbók lögreglu.Fleiri bílstjóra bíður sekt fyrir hraðakstur í vorinu og akstur undir áhrifum fíkniefna ásamt því sem einn farþegi var kærður fyrir hnífaburð. Auk þessa rannsakar lögreglan innbrot í heimahús í Árbæjarhverfi þar sem munum var stolið.