Ástralski hermaðurinn Ben Roberts-Smith hefur verið látinn laus gegn tryggingu en hann er ákærður í fimm liðum fyrir að hafa myrt fjölda óvopnaðra fanga meðan hann þjónaði í Afganistan árin 2009 til 2012.Roberts-Smith var handtekinn í Sydney fyrir tíu dögum eftir umfangsmikla rannsókn á meintum stríðsglæpum ástralskra hermanna í Afganistan um tveggja áratuga skeið.Tæplega 40 þúsund ástralskir hermenn voru um tveggja áratuga skeið sendir til að taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna og NATÓ gegn talibönum og öðrum vígahópum í Afganistan.Lögmaður Roberts-Smith sagði óásættanlegt að halda honum föngnum meðan málið mjakaðist gegnum réttarkerfið og dómarinn sem úrskurðaði að hann skyldi látinn laus sagði hans bíða áralöng fangavist. Saksóknari sagði brýnt að setja ströng skilyrði fyrir lausn herman