Palestínsk yfirvöld hafa framselt Hicham Harb til Frakklands. Hann er sjötugur og talinn höfuðpaur handsprengju- og skotárásar sem tveir hópar manna gerðu á veitingahúsið Jo Goldenberg í gyðingahverfinu Marais, þar sem sex voru drepnir og tuttugu særðust.Þá hafði ekki verið gerð mannskæðari atlaga að gyðingum í Frakklandi frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Álitið var að árásarmennirnir tilheyrðu Fatah-byltingarhreyfingunni undir stjórn Abus Nidal. Hann var um tíma einn eftirlýstasti glæpamaður heims og lést í skotárás á heimili sínu í Bagdad árið 2002.Hryðjuverkadeild ríkissaksóknara Frakklands greindi Reuters frá þessu í gær. Palestínsk yfirvöld handtóku Harb í september, skömmu áður en Frakkar lýstu yfir viðurkenningu á ríki Palestínumanna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.Þá sagði uta