Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hlutabréf Netflix féllu í verðu þrátt fyrir hagnað og góðar tekjur

Verð á hlutabréfum í streymisveitunni Netflix féllu um meira en átta af hundraði eftir að fyrirtækið tilkynnti um að tekjur fyrsta ársfjórðungs 2026 næmu 12,25 milljörðum bandaríkjadala.Sú niðurstaða fer þó ögn fram úr væntingum. Hlutabréfin lækkuðu þótt hagnaður Netflix næmi 5,28 milljörðum dala sem jókst vegna þóknunar fyrir riftun á samningi um kaup veitunnar á Warner Bros. Discovery.Netflix tilkynnti í febrúar að fyrirtækið hygðist falla frá tilboði sínu eftir að Paramount hækkaði sitt tilboð talsvert.Ekki væri fjárhagslega hagkvæmt að kaupa fyrirtækið á þá 111 milljarða dala sem Paramount bauð. Hlutabréf Netflix hækkuðu nokkuð í verði eftir þetta, þar sem talið var að fyrirtækið gæti varið fénu til framleiðslu vinsæls sjónvarpsefnis.Yfirtaka Paramount gæti gjörbreytt fjölmiðlalandslag
Hlutabréf Netflix féllu í verðu þrátt fyrir hagnað og góðar tekjur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta