Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Líbanir saka Ísrael um að brjóta gegn ákvæðum vopnahléssamkomulagsins

Hernaðaryfirvöld í Líbanon segja Ísraelsher í nótt hafa haft uppi hernaðartilburði og þannig brotið gegn ákvæðum vopnahlésins sem tók gildi á miðnætti að staðartíma.Reykur stígur til himins eftir loftárás Ísraelshers á þorpið Bint Jbeil í Suður-Líbanon í gær.EPA / ATEF SAFADIHer Líbanons hvatti í færslu á X íbúa í sunnanverðu landinu að hafa varann á vegna athæfis Ísraelshers eftir að vopnahléð komst á. Ísrael dró herlið sitt ekki til baka. Líbanska ríkisfréttastöðin NNA segir Ísraelsher hafa gert stórskotaliðsárásir í landinu sunnanverðu. Ísraelsk stjórnvöld hafa ekki enn tjáð sig um málið.
Líbanir saka Ísrael um að brjóta gegn ákvæðum vopnahléssamkomulagsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta