Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Danska konan fær sérmeðferð hjá Danska ríkisútvarpinu

Sjónvarpsþættir Benedikts Erlingssonar, Danska konan, eru í sýningum hjá Danska ríkisútvarpinu, DRTV, um þessar mundir. Þættirnir fá sérmeðferð hjá sjónvarpsstöðinni en undanþága hefur verið gerð á vanalegu fyrirkomulagi hennar.„Danska leikkonan Trine Dyrholm stendur á hæð með útsýni yfir Reykjavík. Hún dansar og syngur,“ segir í grein á vef DR. „En skyndilega truflar rödd hana og allt önnur mynd fyllir stærstan hlut skjásins – langar þig ekki að horfa á annan þátt á DRTV núna?“Þetta átti við um sýningar á fyrstu tveimur þáttum Dönsku konunnar hjá Danska ríkisútvarpinu, líkt og aðra sjónvarpsþætti. Fyrirkomulaginu hefur þó verið breytt og nú fær Dyrholm að syngja og dansa fullkomlega óáreitt af dönskum dagskrárþul og auglýsingu fyrir annað sjónvarpsefni.Tónlistin í Dönsku konunni er stór h
Danska konan fær sérmeðferð hjá Danska ríkisútvarpinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta