Barna- og menntamálaráðherra segir það rangt að formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) hafi fyrst heyrt af fyrirhuguðum breytingum hennar á námsmatskerfi grunnskóla á þingi KÍ í gær. Þær fyrirætlanir að hverfa frá notkun bókstafa við námsmat hafa reynst umdeildar meðal kennara.