Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Heimskreppa vofir yfir ef stríðinu gegn Íran linnir ekki

Árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því að það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu úr um það bil 70 bandaríkjadölum á tunnuna upp í rúmlega 100 dollara strax í byrjun mars, vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum. Á sama tíma og olíurisarnir - hið sádíska Saudi Aramco, bandaríska ExxonMobil og hið rússneska Gazprom, svo nokkur séu nefnd, raka saman milljörðunum sem aldrei fyrr, varar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hins vegar við alheimskreppu að óbreyttu, það er, ef ekki tekst að binda enda á stríðið hið snarasta.Um þetta var fjallað í Speglinum. Hlusta má á þá umfjöllun í spilaranum hér að neðan eða lesa
Heimskreppa vofir yfir ef stríðinu gegn Íran linnir ekki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta