Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir enga formlega umræðu um breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum hafa átt sér stað.Breytingin, sem Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra tilkynnti um á fundi Kennarasambands Íslands í gær, hefur verið harðlega gagnrýnd af kennurum.„Það er náttúrulega búið að kasta fram einhverjum alls konar hugmyndum í bríaríi og fjölmiðlum og slíkt en formleg umræða hefur ekki farið fram,“ segir Mjöll. KENNARAR UPPLIFI SORG OG VONBRIGÐI Síðdegis í dag sendi þing Kennarasambandsins frá sér ályktun þar sem lýst er alvarlegum áhyggjum af framgöngu ráðherra. Þar segir að stöðugleika hafi skort í menntamálum og ráðherraskipti hafi verið tíð en kallað er eftir breyttum vinnubrögðum, meiri vandvirkni og nýjum tón í stefnumörkun stjórnvalda.„Ég h