Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tæpur helmingur allrar kampavínsuppskeru í bráðri hættu

Talið er að um 40% allrar kampavínsuppskeru sé í bráðri hættu í ár vegna frosts í Norður-Frakklandi síðustu daga. Svo slæmt hefur ástandið ekki verið í meira en 20 ár.Vorið kom snemma í Frakklandi og víða fór hiti yfir 20 stig í febrúar. Þrúgurnar voru því ekki eins harðgerðar og lifa ekki af frostið sem verið hefur undanfarið.Þegar frystir hafa vínbændur nokkur vopn í hendi. Hægt er að vökva í von um að klakaböndin hverfi eða setja upp gashitara og kveikja elda.„Hættan á kalskemmdum er fjarri því að vera liðin hjá. Hún getur varað fram í byrjun maí, jafnvel fram í miðjan maí. Ef þetta hættir í dag getum við bætt úr tjóninu með varabirgðum af víni, en það á ekki við um alla,“ segir David Gaudinat, vínbóndi í Champagne, um stöðuna.
Tæpur helmingur allrar kampavínsuppskeru í bráðri hættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta