270 gráðu hiti mælist á nýju jarðhitasvæði Orkuveitunnar á Hellisheiði. Það gæti orðið lykilsvæði Orkuveitunnar til framtíðar og hugsanlega nýst til bæði húshitunar og raforkuframleiðslu.Jarðhitasvæðið er á Meitlum á Hellisheiði, á hægri hönd þegar ekið er í átt að Hveragerði. Harpa Pétursdóttir, forstöðukona nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni, segir svæðið hafa verið rannsakað um nokkurt skeið.„En núna í lok síðasta árs og byrjun þessa árs höfum við borað tvær rannsóknarholur á þessu svæði sem eru að sýna okkur nokkuð háan hita, um 270 gráður. Þannig þetta er svæði sem að gefur mjög góðar væntingar um að þarna sé auðlind að finna,“ segir hún.Tilraunaboranir á nýju jarðhitasvæði á Hellisheiði sýna allt að 270 gráðu hita. Vonir standa til þess að það geti nýst bæði til húshitunar og raforkufr