Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra var gestur í Kastljósi í kvöld. Þar brást hún við viðbrögðum kennarasamfélagsins við störfum hennar í mennta- og barnamálaráðuneytinu.Kennarasamband Íslands lýsti í dag yfir alvarlegum áhyggjum af framgöngu mennta- og barnamálaráðherra. Það hafi áhyggjur af þeim viðhorfum sem ráðherra hafi sýnt í garð skólasamfélagsins.Inga sagðist eiga, og vilja eiga áfram, virkt samtal með kennurum um stefnumótun.„Stefnumótunin fer fram í menntamálaráðuneytinu og það er eitt sem að þau verða bara að átta sig á það er ég sem er menntamálaráðherrann. Ég býð fram mínar hendur í allar áttir og opinn faðm og endalaust til í samtalið,“ sagði Inga.Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í Spilara RÚV.