Hagnaður Ríkisútvarpsins árið 2025 var 14 milljónir króna. Það er viðsnúningur um 200 milljónir frá árinu á undan þegar samstæðan tapaði 188 milljónum króna. Rekstrartekjur lækkuðu um 1% milli ára á föstu verði, en rekstrargjöld lækkuðu um 3,4%,Þetta kom fram í kynningu ársreiknings á ársfundi Ríkisútvarpsins í dag.Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins, sagði að grípa gæti þurft til frekari aðhaldsaðgerða á þessu ári til að halda sjó. Meðal þess sem hann nefndi að þyrfti að skoða voru kaup á efni frá stórum alþjóðlegum íþróttamótum, hverra umfang hann sagði aukast stöðugt.„Ef kostnaður við sýningarrétt stórviðburða og umfang í dagskrártíma stóreykst hlýtur svigrúm til að annast aðrar skyldur að minnka,“ sagði Stefán Jón.EBIDTA var 899 milljónir króna og batnaði um 213 mill