Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump segir Írana tilbúna til að láta kjarnorkubirgðir af hendi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írana hafa samþykkt að afhenda Bandaríkjamönnum úraníumbirgðir sínar.„Þeir hafa fallist á að láta okkur fá kjarnorkurykið aftur,“ sagði Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag og vísaði þar með til úraníumbirgða Íran sem Bandaríkin hafa sagt að hægt sé a nýta í framleiðslu kjarnorkuvopna.„Það er mjög líklegt að við náum samkomulagi,“ sagði Trump.Fyrr í dag fullyrti forsetinn að samkomulag hefði náðst um tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon. Á Truth Social segist hann hafa rætt við Joseph Aoun, forseta Líbanons, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og þeir ætli að hittast í Washington í næstu viku.
Trump segir Írana tilbúna til að láta kjarnorkubirgðir af hendi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta