Leó páfi gagnrýndi í dag þjóðarleiðtoga sem verðu milljörðum í stríðsrekstur og sagði heiminn í heljargreipum nokkurra kúgara. Páfinn hefur átt í orðaskaki við Bandaríkjaforseta síðustu daga.Páfinn hefur lagt áherslu á að samið verði um frið á átakasvæðum heimsins. Eins hefur hann gagnrýnt hernað Ísraela og Bandaríkjamanna í Íran. Hann lýsti þungum áhyggjum af hótunum Trumps á dögunum um að eyða siðmenningu Írans.Leo páfi telur heiminn í heljargreipum nokkurra kúgara. Hann hefur gagnrýnt aukinn hernað í heiminum að undanförnu við litla hrifningu Bandaríkjaforseta.Trump hefur kallað páfa veikgeðja og sagt hann of frjálslyndan. Þá vakti það mikla úlfúð þegar Trump birti mynd af sér, líklega búna til með gervigreind, sem sýnir hann í líki Krists.Páfi heimsótti Kamerún í dag og sagði í ávarpi