Nemendur sem tóku þátt í vinnustofu mennta- og barnamálaráðuneytisins um símafrí í skólum voru flestir sammála um að takmarka ætti símanotkun nemenda.Athena Freyja Eyfeld Sólveigardóttir, 10. bekk Ingunnarskóla, segir að flestir hafi verið sammála um að setja einhver takmörk á símanotkun, a.m.k. í kennslustundum og helst líka í frímínútum.Davíð Bogi Sigmundsson, nemandi í 9. bekk í Sunnulækjarskóla, vill sjá strangari reglur um símanotkun en mikilvægt sé að sama gangi yfir alla.Magnea Þórey Guðlaugsdóttir, í 1. bekk í Kvennaskólanum í Reykjavík, segir réttast að takmarka símanotkun grunnskólanema en að tryggja þurfi aðra afþreyingu.Helgi Rafn Egilsson, 10. bekk Lækjarskóla, þar sem er símabann, segir það mikilvægt fyrir félagslífið, sem hann segist hafa séð mikinn mun á í skólanum.