Þann 23. febrúar var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á leið til Póllands og þaðan til Úkraínu, langt ferðalag sem krafðist þess að allir yrðu á réttum stað á réttum tíma.Þegar áætlunarflug raskaðist var brugðið á það ráð að fljúga með TF-SIF, skrúfuþotu Landhelgisgæslunnar, frá Reykjavík til Póllands. Því var haldið af stað, sem leið lá í átt að Noregi, Eystrasalti og loks yfir Pólland. Ferðin var tíðindalítil þar til vélin nálgaðist flugvöllinn í Rzeszow, sem er þungamiðja herflutninga þeirra sem stutt hafa Úkraínu í stríðinu þar í landi.Í aðfluginu fór allt af stað. Kort sem sýndi hvar vélin var stökk til og frá, mikil truflun var á GPS-merki og vélin virtist allt í einu vera þrjátíu og átta sjómílur frá raunverulegri staðsetningu.Þarna reyndist einhver hafa beitt brögðum til að t