Í gær kepptust margir af bestu barþjónum landsins um sigurinn með kokteila sem voru meðal annars bornir fram í kókómjólkurfernum, kransakökum og paprikum. Keppnirnar fara fram samhliða Reykjavík Cocktail Week sem hófst á mánudaginn, 13. apríl, og stendur yfir fram á sunnudagskvöld. Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð kokteilamenningar á Íslandi í samstarfi við helstu vínbirgja, veitingahús og bari á höfuðborgarsvæðinu.