Hagnaður Ríkisútvarpsins árið 2025 var 14 milljónir króna. Það er viðsnúningur um 200 milljónir frá árinu á undan þegar samstæðan tapaði 188 milljónum króna. Rekstrartekjur lækkuðu um 1% milli ára á föstu verði, en rekstrargjöld lækkuðu um 3,4%,Þetta kom fram í kynningu ársreiknings á ársfundi Ríkisútvarpsins í dag.Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins, sagði að grípa gæti þurft til frekari aðhaldsaðgerða á þessu ári til að halda sjó.EBIDTA var 899 milljónir króna og batnaði um 213 milljónir milli ára. Launakostnaður Ríkisútvarpsins var 3,9 milljarðar króna , en stöðugildum fækkaði úr 275 að meðaltali í 269.Björn Þór Hermannsson fjármálastjóri sagði aðhaldssamt og krefjandi rekstrarár að baki og að tryggja þyrfti sjálfbærni í rekstri Ríkisútvarpsins.Stjórn RÚV var endurkjö