Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Starfsfólk FS fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis

Starfsfólk Fjölbrautaskóla Suðurnesja fordæmir bæði vinnubrögð og framkomu mennta- og barnamálaráðuneytisins og segir ákvörðun skólameistara skólans að segja upp stöðu sinni í mótmælaskyni vera „áfall fyrir starfsfólk“.Kristinn Ásmundsson tilkynnti fyrr í dag að hann hefði ákveðið að hætta sem skólameistari skólans eftir næstum 40 ára starf við FS. „Það er bara í rauninni húsnæðismál. Við erum búin að berjast lengi í þessu,“ segir Kristján í samtali við RÚV fyrr í dag um ástæður starfsloka sinna.Í yfirlýsingu frá starfsfólki segir að ráðuneytið hafi um árabil ekki staðið við gefin loforð um viðbyggingu og bætta aðstöðu þrátt fyrir að það væri löngu tímabært að ráðast í úrbætur.„Ekkert hefur þokast áfram í þessum málum og í kjölfar tilkynningar skólameistara í dag um ástæðu uppsagnar er ljó
Starfsfólk FS fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta