Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrðir að náðst hafi samkomulag um tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon. Á Truth Social segist hann hafa rætt við Joseph Aoun, forseta Líbanons og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og þeir ætli að hittast í Washington í næstu viku. Stirt hefur verið milli Líbanons og Ísraels áratugum saman. Fyrir sex vikum dróst Líbanon inn í stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Írana eftir að Hezbollah gerðu árásir á Ísrael. Trump tekur ekki fram hvort eða hvernig Hezbollah kemur að þessum vopnahlésviðræðum. Leiðtogi Hezbollah hefur lagst gegn viðræðum Líbanons við Ísrael.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.AP / Alex Brandon