Tveir menn sem voru handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás í heimahúsi á Akureyri á föstudaginn eru lausir úr gæsluvarðhaldi.Öðrum þeirra var sleppt á þriðjudag þegar Landsréttur hafnaði kröfu um varðhald og hinum var sleppt í gær. Að sögn lögreglu kröfðust rannsóknarhagsmunir þess ekki að hafa mennina lengur í gæsluvarðhaldi.Mennirnir voru laugardaginn 11. apríl úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Til rannsóknar er hvort um tilraun til manndráps hafi verið að ræða.Lögreglan sagði í viðtali við fréttastofu að rannsókn málsins miði vel og að farið væri að sjá fyrir endann á henni.Fórnarlamb árásarinnar leitaði á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri aðfararnótt föstudagsins 10. apríl með stunguáverka og gekkst undir skurðaðgerð.