Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ráðherra sagði af sér – Telur stjórnina hafa brugðist Írum

Aðstoðar landbúnaðarráðherra Írlands, Michael Healy-Rae, sagði af sér í gær og sagði ríkisstjórnina hafa brugðist Írum. Fjölmenn mótmæli gegn hækkandi eldsneytisverði hafa verið á Írlandi síðustu daga. Bændur og flutningabílstjórar hafa fjölmennt í mótmælin.Healy-Rae sagði af sér sama dag og þingið greiddi atkvæði um tillögur stjórnarandstöðuflokksins Sinn Fein um vantraust á hendur ríkisstjórninni. Hann sagðist ekki geta greitt atkvæði með trausti á stjórnina. RTÉ, ríkisútvarp Írlands, hefur eftir ráðherranum fyrrverandi að hann hafi séð fullorðna menn gráta yfir eldsneytisverðinu, hann hefði því ekki annan kost en að fara úr stjórninni. Ríkisstjórnin stóð af sér atkvæðagreiðslu um vantraust með 92 atkvæðum gegn 78.Dísilolía hefur hækkað um 28 prósent á Írlandi og bensín um 25 prósent síð
Ráðherra sagði af sér – Telur stjórnina hafa brugðist Írum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta