Læknafélag Reykjavíkur lýsir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítala að leggja niður starf sem Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Íslands, sinnti hjá spítalanum.Ragnar hefur starfað sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á Landspítalanum í Fossvogi, í 33% starfshlutfalli, en var sagt upp í síðustu viku. Hann sagði átakanlegt að heyra skýringar framkvæmdastjóra Landspítalans á uppsögninni.Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sagði uppsögnina vera hluta af skýrri og ákveðinni aðhaldskröfu stjórnvalda á spítalann.Ragnari var boðið aukið starfshlutfall á spítalanum og þar með falli þau rök niður að starf hans hafi verið lagt niður vegna ríkrar aðhaldskröfu. Hann segir að sér sé ekki fært að auka við sig starfshlutfall á