Reynt verður að tryggja sem minnsta röskun á siglingum þegar mótorinn verður tekinn úr Herjólfi til viðgerðar í næstu viku. Breiðafjarðarferjan Baldur mun sigla í stað Herjólfs eftir hefðbundinni áætlun á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja á mánudag og þriðjudag. Mótorinn í Herjólfi þarf að senda til Hollands til viðgerðar.Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, skýrir að Herjólfur geti siglt á takmörkuðu afli. „Við erum núna svona þrjá og hálfan upp í fjóra tíma með siglingu sem tekur venjulega þrjá tíma. Vonandi þegar Landeyjahöfn opnar þá verður það ennþá minna rask.“Landeyjahöfn er lokuð og óvíst er hvenær hún verður opnuð aftur.Á meðan Baldur siglir fyrir sunnan verða enga siglingar að Brjánslæk á Vestfjörðum eins og alla jafna. Í hans stað mun báturinn Ingólfur sigla