Framsóknarflokkurinn kynnti í dag tillögur um aðgerðir í efnahagsmálum. Flokkurinn leggur meðal annars til lækkun skatta á matvæli og eldsneyti tímabundið, afturköllun á hækkun skattstofns leigutekna og samræmda og fyrirsjáanlega gjaldtöku hins opinbera.Aðgerðunum er ætlað að létta undir með heimilum og draga úr kostnaðarþrýstingi, meðal annars með lægri virðisaukaskatti á matvæli sem og aðgerðum sem lækka bifreiðakostnað. Lagt er til að aðgerðirnar gildi frá 1. maí til 1. október 2026 eða fram yfir endurskoðun komandi kjarasamninga.Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins kynnti aðgerðirnar í dag ásamt Stefáni Vagni Stefánssyni varaformanni Framsóknarflokksins.„Það er nauðsynlegt að ná nýrri þjóðarsátt,“ segir Lilja.„Þetta eru sex aðgerðir og þær miða allar að því að við náum þess