Fyrrverandi vararíkisstjóri Virginíuríkis í Bandaríkjunum, Justin Fairfax, skaut eiginkonu sína, Cerina Fairfax, til bana á heimili þeirra í Annandale í Virginíu í nótt og svipti sig í kjölfarið lífi. Þetta staðfestir lögreglustjórinn í Fairfax-sýslu, Kevin Davis, í samtali við AP. Samkvæmt lögreglu voru tvö unglingsbörn hjónanna inni á heimilinu þegar harmleikurinn átti sér stað. Sonur þeirra hringdi í neyðarlínuna, 911, skömmu eftir miðnætti. Lesa meira