Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur nú til að forseti skipi sjálfur forsetaritara og það til fimm ára. Í frumvarpinu var upprunalega lagt til að forsætisráðherra myndi skipa forsetaritara. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gagnrýndi þetta harðlega og sagði það aðför að sjálfstæði embættisins að forsætisráðherra fengi þetta hlutverk.