Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, tilkynnti starfsfólki skólans í morgun að hann hyggist láta af störfum. Hann hefur starfað við skólann í 40 ár og verið skólameistari í tæp fjórtán.„Það er bara í rauninni húsnæðismál. Við erum búin að berjast lengi í þessu,“ segir Kristján í samtali við RÚV um ástæður starfsloka sinna.Hann vísar til þess að fyrir tveimur árum hafi menntamálayfirvöld ákveðið að ráðast í viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við fjóra framhaldsskóla, þar á meðal Fjölbrautaskóla Suðurnesja.„Það þarf sárlega að bæta úr aðstöðu fyrir almennt bóknám líka. Við erum að kenna í þremur gámum fyrir utan og leigjum síðan tvær aðrar stofur undir aðra kennslu annars staðar í bænum.“Kristján segir að enn hafi ekkert gerst. „Það er alltof lítið að þokast í þes