Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sagði í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag að til standi að gera breytingar á Loftbrú. Ekki standi til að hætta með hana né að draga saman fjárveitingar til verkefnisins.Í dag niðurgreiðir ríkið 40% af heildarfargjaldi fyrir allt að 6 flugleggi á ári fyrir fólk á landsbyggðinni. Að mati Eyjólfs er möguleiki til þess að nýta skattpeninga landsmanna betur með fastri krónutölu en ekki prósentutölu, þar sem flugmiðar hækki gjarnan og hafa hækkað á undanförnum árum. Hvernig virkar Loftbrú? 40% afsláttur af heildarfargjaldi fyrir allt að 6 flugleggi á ári * Fyrir alla með lögheimili fjarri borginni og á eyjum * Bætir aðgengi landsbyggðar að miðlægri þjónustu í höfuðborginni Loftbrú veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi fyrir allar áætlunarleið