Lögreglumenn í tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segja að árið 2025 hafi þeir komið að tíu manns sem höfðu verið látnir í langan tíma áður en þeir fundust.„Sem er óvenjumikið. Á meðalári eru þetta kannski þrír til fjórir einstaklingar,“ segir Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi í tæknideild lögreglunnar.Hann segir fólkið hafa dáið heima hjá sér og enginn hafi vitjað þess. „Og fyrir því geta legið margar ástæður. Það geta verið veikindi eða að einhver hreinlega kjósi það að eiga ekki neitt samneyti við aðra.“Guðmundur Þ. Tómasson lögreglufulltrúi segir að málunum sé að fjölga.„Þegar það finnast líkamsleifar fólks sem er kannski ekki gott að bera kennsl á vegna þess að það er búið að liggja svo lengi, þá blasir við einhvers konar einangrun eða einmanaleiki, að fólk annað hvort fari l