Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Andstæðingum veggjalda fjölgar á ný

Andstaða við innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega hefur aukist síðasta árið, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Á sama tíma hefur dregið úr stuðningi við slíka gjaldtöku.43 prósent landsmanna lýsa sig mjög eða frekar andvíg veggjöldum, fjórum prósentustigum meira en á síðasta ári. Þeim sem eru fylgjandi innheimtunni hefur fækkað úr 42 prósentum í 37 prósent.Þetta er í sjötta skipti sem Maskína kannar afstöðu fólks til veggjalda. Í fimm af sex skiptum hafa andstæðingar þeirra verið fleiri en stuðningsmenn þeirra. Eina undantekningin var í fyrra þegar fylgjendum veggjalda fjölgaði mjög milli ára en andstæðingum fækkaði nokkuð.Norðlendingar eru líklegastir til að styðja innheimtu veggjalda (47 prósent) en Austlendingar, Sunnlendingar og Reykjanesmenn eru mest á móti
Andstæðingum veggjalda fjölgar á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta