Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nýr flugvöllur opnaður á Grænlandi

Nýr flugvöllur var formlega opnaður í bænum Qaqortoq á suðurhluta Grænlands í morgun. Áður var aðeins hægt að komast til bæjarins á bát eða þyrlu. Flugvöllurinn leysir af hólmi flugvöllinn í Narsarsuaq sem hefur verið lokað.Hátíðarstemning var á nýja flugvellinum við opnunina. Þá hafði hópur fólks tekið sér stöðu til að sjá fyrstu lendinguna. Fyrstu farþegarnir sem innrituðu sig í flug í morgun voru Laila og Paalu Kuitse sem voru á leið til Nuuk að heimsækja barnabarn sitt. „Við höfum beðið í 40 ár eftir að flugstöðin verði opnuð og við erum því mjög glöð,“ sögðu þau í kór við KNR, ríkisútvarp Grænlands, í morgun.Samgönguyfirvöld gáfu grænt ljós á öryggismál flugvallarins seint í gærkvöld. Leyfið er þó háð þeim skilyrðum til að byrja með að tvær flugvélar megi lenda á klukkustund og að Air
Nýr flugvöllur opnaður á Grænlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta